17.2.2025
Atkvæðisgreiðsla um kjarasamning LSS við Samband íslenskra sveitafélaga
Í dag hófst atkvæðagreiðsla um kjarasamning LSS við SÍS sem samþykktur var 5. febrúar síðastliðinn og hefur verið í kynningu. Þeir sem eru með skráð símanúmer hjá LSS fengu sent SMS en á forsíðu heimasíðunnar er hlekkur á kosningarnar.
Þeir sem hafa kosningarétt eru félagsmenn LSS, ekki þeir sem falla undir stjórnendasamninginn, sem ganga kjarasamning LSS og SÍS og eru ráðnir í starfshlutfall og falla því undir 1. gr. laga nr. nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna.