11.3.2024
Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG 2024
Heil og sæl,
ASÍ-Ung hafði samband við BSRB og vill bjóða ungu fólki innan BSRB að taka þátt í fræðslu- og tengsladögum 2024 undir yfirskriftinni Framtíð vinnumarkaðarins. Um er að ræða viðburð þar sem ung fólk með áhuga á verkalýðsmálum kemur saman. Sonja okkar verður með erindi ásamt Forseta ASÍ og fræðslufyrirlesurum – hverjir þeir verða kemur í ljós síðar.
Dagarnir fara fram í Reykjanesbæ og er gist eina nótt. ASÍ–Ung býður í hádegis- og kvöldverð en gisting er á kostnað félaga. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna hér að neðan.
Við hvetjum formenn til að bjóða sínu fólki á viðburðinn. Miðað er við 35 ára aldur.
Þau sem hafa áhuga mega senda mér nöfn og netföng. Ég mun halda utanum skráningu og senda frekari upplýsingar til þátttakenda þegar nær dregur.
Ef þið hafið spurningar ekki hika við að hafa samband.
Bestu kveðjur,
Fríða
Marriott Hotel, Aðalgötu 60, 230 Keflavík: 11.-12. apríl 2024
Dagskrá:
Fimmtudagur - 11. apríl --------------
12:00 - 13:00 Móttaka, hádegismatur og skráning
13:15 – 13:30 Erindi: Formaður ASÍ-UNG
13:30 – 14:30 Fræðsluerindi nr.1
– Umhverfismál og atvinnulýðræði
14:30 – 15:00 Kaffipása
15:00 – 15:30 Erindi: Formaður BSRB
15:30 – 16:30 Fræðsluerindi nr.2
– Jafnréttismál og málefni innflytjenda
16:30 – 17:00 Samantekt
19:00 Kvöldverður í boði ASÍ-UNG
Föstudagur - 12. apríl --------------------
09:30 – 10:00 Erindi: Forseti ASÍ
10:00 – 11:30 Samtal um framtíð vinnumarkaðarins
11:30 – 11:40 Formaður ASÍ-UNG lýkur viðburðinum
Kostnaður og fyrirkomulag:
Skráning: Senda nafn og netfang á frida@bsrb.is fyrir miðvikudaginn 27. mars nk.
Gisting: Hótel Marriot býður þátttakendum gistingu með morgunverði á 23.500 kr. Þátttakendur/eða félög sjá um að bóka og greiða fyrir gistingu.
Matur: ASÍ-UNG býður þátttakendum í hádegis- og kvöldverð á fimmtudeginum. Morgunverður er innifalinn í gistingu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi sér sjálfir á staðinn.