Umsókn um aðild
Orlofsvefur
Mínar síður
Viðburðir
Kjaramál
Sjóðir
Þing LSS
Útgefið efni
Fagdeild sjúkraflutningamanna
Fagdeild slökkviliðsmanna

13.6.2024

Myasthenia Gravis ráðstefna- 27.september 2024

MG félagi Íslands langar að bjóða félagsmönnum LSS að sitja þverfaglega norræna ráðstefnu sem ber yfirskriftina Myasthenia Gravis - Lífsgæði og meðferð.

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel frá kl 8-16, föstudaginn 27. september 2024. Enginn aðgangseyrir er að ráðstefnunni en skráning tryggir pláss. Skráning fer fram á heimasíðu félagsins, mgisland.is , og þarf að vera lokið fyrir 1. september 2024.

Myasthenia Gravis (MG) er sjaldgæfur sjálfsofnæmissjúkdómur í taugavöðvamótum sem veldur sveiflukenndu vöðvakraftleysi og þreytu sem hefur víðtæk áhrif á lífsgæði fólks. Ýmis meðferðarúrræði eru þekkt en þegar um er að ræða svo fátíðan sjúkdóm er almenn þekking og reynsla fagfólks óhjákvæmilega takmörkuð.

MG félagið vill með þessari ráðstefnu breiða út og auka þekkingu á sjúkdómnum. Sjö af fremstu sérfræðingum Norðurlandanna í MG munu halda erindi um sitt sérsvið. Flest þeirra eru höfundar leiðbeininga um meðferð við MG sem kom út í febrúar síðastliðnum*. Dagskráin er þannig saman sett að hún mun nýtast bæði þeim sem þekkja MG og jafnframt þeim sem vita minna.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur hana og nýta þetta einstaka tækifæri til að hlusta á helstu sérfræðinga Norðurlandanna í MG.

Fyrir hönd stjórnar MG félags Íslands

 Jakob Kristjánsson

Lestu líka

11.7.2024

Skrifstofa LSS er lokuð frá og með 12.júlí - 8.ágúst vegna sumarleyfa starfsmanna.

4.7.2024

PÉTUR SIGURÐSSON – 10.APRÍL 1969 – 23.JÚNÍ 2024

30.6.2024

Á vakt fyrir Ísland - fréttablað 2024