6.2.2025
Fréttatilkynning - nýr kjarasamningur
LSS undirritar nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga
Á áttunda tímanum í gærkvöldi skrifaði Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Með undirritun nýs kjarasamnings er komið í veg fyrir fyrirhugað verkfall sem átti að hefjast mánudaginn 10. febrúar.
Á næstu tveimur vikum verður farið í að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og í framhaldi verður rafræn kosning sem verður lokið fyrir 24. febrúar. Kjarasamningurinn sem undirritaður var er á svipuðum nótum og aðrir kjarasamningar sem gerðir hafa verið.