9.9.2024
Málþing Eldvarnabandalagsins 13.september 2024
Eldvarnir geta öllu breytt
Eldvarnabandalagið stendur fyrir málþingi í Reykjavík föstudaginn 13. september 2024 kl. 13 – 16.00.
Í Veröld – húsi Vigdísar, (VHV- 023 fyrirlestrarsal á jarðhæð).
Málþingið er opið öllum áhugasömum. Mörg áhugaverð erindi um eldvarnir og verkefni Eldvarnabandalagsins verða haldin á fundinum en dagskrá er sem hér segir:
13.00 Setning
Anna Sigurðardóttir, formaður stjórnar Eldvarnabandalagsins.
13.15 Umfang brunatjóna, fjölgun milli ára.
Grétar Þór Þorsteinsson, sérfræðingur, brunavarnasvið HMS
13.30 Búseta í atvinnuhúsnæði.
Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
13.50 Bruni í rafhlöðum.
Lárus Kristinn Guðmundsson, Varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu.
14.10 Kaffihlé
14.30 Logaleyfi, hvað er það?
Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
14.50 Ferðavagnar – og gróðureldar
Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð
15.10 Brunavarnir og starfsfólk hjá Garra
Styrmir Þór Davíðsson, Öryggisstjóri Garra
Hér er viðburðurinn á fésbókinni og einnig hlekkur á heimasíðu Eldvarnabandalagsins.
https://www.facebook.com/events/1358012078490487?active_tab=about
http://eldvarnabandalagid.is/2024/08/27/eldvarnir-geta-ollu-breytt/